---
title: "Námsmat"
description: "Námsmati er ætlað að meta hvernig nemanda hefur gengið að tileinka sér námsmarkmið í áfanga og er haft eins fjölbreytt og kostur er. Gegnum verkefnastýrt nám er lögð áhersla á að vera með…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/skolanamskra/namsmat"
---

# Námsmat

Námsmati er ætlað að meta hvernig nemanda hefur gengið að tileinka sér námsmarkmið í
áfanga og er haft eins fjölbreytt og kostur er. Gegnum verkefnastýrt nám er lögð áhersla á að
vera með leiðsagnarmat þannig að nemendur nái að bæta lausnir verkefna áður en til lokaskila
kemur. Lögð er áhersla á að kennarar veiti umsögn um niðurstöðu mats þannig að nemandi
viti hvar hann standi og skilji hvernig niðurstaða einkunnar er fenginn.
Allar einkunnir birtast nemendum á INNU.

Source: https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/skolanamskra/namsmat
