---
title: "Grunnþættir menntunar"
description: "Í framhaldsskóla RAFMENNTAR er unnið með grunnþætti menntunar á eftirfarandi hátt: • Læsi o með því að nemendur þjálfist í að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir bæði munnlega og skriflega o…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/skolanamskra/inntokuskilyrdi/grunnthaettir-menntunar"
---

# Grunnþættir menntunar

Í framhaldsskóla RAFMENNTAR er unnið með grunnþætti menntunar á eftirfarandi hátt:

• Læsi
 o með því að nemendur þjálfist í að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir
 bæði munnlega og skriflega
 o með því að þjálfa nemendur í samræðum og hlustun í vinnu með öðrum
 o með því að þjálfa nemendur í að afla gagna, flokka og að nýta sér upplýsingar
 á gagnrýnin hátt

• Sjálfbærni
 o með því að hafa umhverfisstefnu sem unnið er eftir í allri starfsemi
 RAFMENNTAR
 o með því að þjálfa nemendur í færni til að taka gagnrýna afstöðu gagnvart
 umhverfi, samfélagi, menningu og efnahagskerfi

• Heilbrigði og velferð
 o með því að fræða nemendur um öryggi og heilbrigt vinnuumhverfi,
 o Með því að hvetja til íhugunar um heilsusamlegan lífsstíl í hæfnimati á
 íþróttaáföngum
 o með því að hafa og vinna eftir forvarnarstefnu sem hvetur nemendur til að
 tileinka sér heilbrigðan lífsstíl

• Lýðræði og mannréttindi
 o með því að leyfa nemendum að vera þátttakendur í ákvörðunum um skólastarfið
 o með því að gera nemendur ábyrga í lýðræðislegum vinnubrögðum
 o með því að hvetja nemendur til að hafa skoðanir á skólanum og náminu taka
 tillit til þeirra ábendinga eins og kostur er

• Jafnrétti
 o með því að hvetja til að nemendur af öllum kynjum sæki námið
 o bjóða upp á fjölbreytt námsform sem hæfir ólíkum hópum t.d. fjarnám, staðnám
 og vendinám
 o með því að nýta fjölbreyttar tæknilausnir og kennsluaðferðir hefur jafnrétti til
 náms aukist fyrir alla nemendahópa
 o með því að hafa og vinna eftir samþykktri jafnréttisstefnu

• Sköpun
 o með því að hvetja til skapandi lausna

Source: https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/skolanamskra/inntokuskilyrdi/grunnthaettir-menntunar
