---
title: "Myndvinnsla"
description: "Myndvinnsla I (KVMV1KT04(A)) Farið er í helstu þætti eftirvinnslunnar/klippingar. Lögð er áhersla á hvernig efni er tekið inn í tölvu, flokkað og merkt. Farið er í mismunandi hljóð- og myndskrár.…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/kvikmyndataekni/myndvinnsla"
---

# Myndvinnsla

#### **[Myndvinnsla I](https://namskra.is/courses/5b9f7ab6d4ed76037e0044a3)**(KVMV1KT04(A))

Farið er í helstu þætti eftirvinnslunnar/klippingar. Lögð er áhersla á hvernig efni er tekið inn í tölvu, flokkað og merkt. Farið er í mismunandi hljóð- og myndskrár. Farið er í grunnþætti klippivinnunnar og tæknileg atriði við klippingu kvikmyndar. Lögð er áhersla á helstu þætti í að setja saman efnið/söguna í klippiborðinu. Farið yfir grunnatriði þess að vinna með titla og grafík í klippihugbúnaði. Nokkur mismunandi klippiforrit kynnt. Farið er ítarlega yfir þjöppunarstaðla, áhrif þeirra og rétta notkun.

#### **[Myndvinnsla II](https://namskra.is/courses/5b9f8dafd4ed76037e00458e)**(KVMV2KT08(B))

Farið er dýpra í helstu þætti eftirvinnslu og klippingar. Nemendum kynnt helstu klippi- og eftirvinnsluforrit. Áhersla er lögð notkn Green Screen Chroma Key. Lögð er áhersla á dramatíska framvindu í klippingunni með áherslu á leikið efni og endanlega útfærslu á efninu (sögunni). Farið er nánar í myndskrár og hvernig nota á myndbrellur og litaleiðréttingu. Farið er í lokavinnslu myndarinnar, gerð titla og aðra grafíska vinnu. Farið er í útkeyrslu kvikmyndar og gerð á sýningareintaki. Nemendur geri stuttmyndir og gagnrýni verk hvors annars.

#### **[Myndvinnsla III](https://namskra.is/courses/5b9faa02d4ed76037e004693)**(KVMV3KT04(C))

Farið er dýpra í helstu þætti eftirvinnslu og klippingar með áherslu á heimildarmyndir og fréttamyndir. Nemendur þurfa að tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð, hafa greinagóða hugmynd um hverju á að ná fram í heimildarmynd með stuðningi handrits. Hafa góða sýn á hvernig frétt er gerð skýr með góðri myndvinnslu. Leiðir til að stytta mynd án þess að missa efnisþráðinn eru prófaðar og æfðar.

#### **[Myndvinnsla IV](https://namskra.is/courses/5b9fb0d8d4ed76037e0046f4)**(KVMV3KT04(D))

Nemendur vinna lokaverkefni sem þegar hefur verið skotið á kvikmyndatökuvél. Nemandinn skilar fullunnu verkefni og notar klippingu, áhrifamyndir, litgreiningu, Green Screen eða annað það sem þarf til að fá fram full áhrif í góðum gæðum.

Source: https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/kvikmyndataekni/myndvinnsla
