---
title: "Vinnuvernd 101"
description: "Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf. Á námskeiðinu verður farið yfir það sem skiptir mestu máli á stuttan og snarpan máta, m.a. verður fjallað um: Vinnuverndarstarf sem þarf að fara…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/vinnuvernd-101"
---

# Vinnuvernd 101

![Vinnuvernd 101](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/c5a579bf-15cd-4def-9bb2-b5ab4879ce5b)

**Námskeið í samstarfi við** **[Vinnuverndarnámskeið ehf](https://vinnuverndarnamskeid.is/)****.**

Á námskeiðinu verður farið yfir það sem skiptir mestu máli á stuttan og snarpan máta, m.a. verður fjallað um:

- Vinnuverndarstarf sem þarf að fara fram á öllum vinnustöðum
- Skipan og hlutverk öryggisnefnda, öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
- Skipulag og kröfur varðandi áhættumat starfa
- Hvaða vinnuslys á að skrá og tilkynna
- Helstu forvarnir vegna vinnuslysa
- Sálfélagslegt áhættumat, stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni
- Líkamlegt álag, hávaða, loftræstingu og meðferð hættulegra efna

Þátttakendur fá send námsgögn í tölvupósti, linka á bæklinga sem þeir lesa og 7 fyrirlestra, samtals um 40 mín. sem þeir horfa á. Að lokum taka þátttakendur stutt krossapróf úr efninu.

Námskeiðið fer fram í fullu fjarnámi. Það er hægt að byrja og læra þegar fólk vill.

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/vinnuvernd-101
