---
title: "Tilboðsgerð verktaka"
description: "Námskeið í samstarfi við Iðuna Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og starfsmenn verktakafyrirtækja sem þurfa að gera tilboð í verkefni og verkhluta. Fjallað er um lög og reglur um útboð og ÍST 30,…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/tilbodsgerd-verktaka"
---

# Tilboðsgerð verktaka

#### Námskeið í samstarfi við Iðuna

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og starfsmenn verktakafyrirtækja sem þurfa að gera tilboð í verkefni og verkhluta. Fjallað er um lög og reglur um útboð og ÍST 30, almenna útboðs- og samningsskilmála um verkframkvæmdir. Farið er yfir magntölur og magntöku einstakra verkþátta. Fjallað er um einingaverð og útreikning þeirra. Farið yfir tilboðsskrár og tilboðsgerð. Á námskeiðinu eru unnin nokkur verkefni úr hverjum þætti þess.

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/tilbodsgerd-verktaka
