---
title: "Þrívíddarmódeling í Fusion 360 og Þrívíddarprentun"
description: "5. nóvember verður farið í kynningu og kennslu á undirstöðuatriðum í Fusion 360 með því markmiði að nemendur geti módelað einfaldari hluti til þrívíddarprentunar. Farið verður yfir helstu verkfæri í…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/thrividdarmodeling-i-fusion-360-og-thrividdarprentun"
---

# Þrívíddarmódeling í Fusion 360 og Þrívíddarprentun

**5. nóvember** verður farið í kynningu og kennslu á undirstöðuatriðum í Fusion 360 með því markmiði að nemendur geti módelað einfaldari hluti til þrívíddarprentunar.

Farið verður yfir helstu verkfæri í Fusion 360, hreyfingar í þrívíddarumhverfinu og hvernig forritið nýtist í að teikna módel til þrívíddarprentunar.

**12. nóvember** verða þrívíddarprentarar á staðnum þar sem farið er yfir undirstöðuatriði í þrívíddarprentun.
Skoðum mismunandi prentaðferðir, efnisval og íhluti. Uppsetning á prentara, stillingar á staðbúnaði og undirbúningur fyrir prentun. Þátttakendur fá síðan tækifæri til að prenta það sem þeir teiknuðu fyrri daginn.

**Undirbúningur og búnaður frá þátttakendum: Þátttakendur mæta með eigin fartölvu með Fusion 360 og Ultimaker Cura uppsettu. Einnig er gott að mæta með mús með skrunhjóli.**

**Fusion 360 Personal (frítt) er hægt að sækja hér:** **[https://www.autodesk.com/products/fusion-360/personal-download](https://www.autodesk.com/products/fusion-360/personal-download)** **(Skráning nauðsynleg og gildir í 3 ár).**

---

**Fullt verð: 47.800 kr (innifalið 5000 kr efnisgjald)**

**RSÍ endurmenntun: 20.000 kr (innifalið 5000 kr efnisgjald)**

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/thrividdarmodeling-i-fusion-360-og-thrividdarprentun
