---
title: "Rafmagnsöryggi"
description: "Rafmagnsöryggi (RAFM08ÖRYG) Lýsing: Viðfangsefni námskeiðsins er rafmagnsöryggi. Fjallað er um helstu hættur af rafmagni, áhrif rafmagns á mannslíkamann, ljósbogahættur, örugg vinnubrögð og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/rafmagnsoryggi"
---

# Rafmagnsöryggi

**Rafmagnsöryggi** (RAFM08ÖRYG)

**Lýsing:** Viðfangsefni námskeiðsins er rafmagnsöryggi. Fjallað er um helstu hættur af rafmagni, áhrif rafmagns á mannslíkamann, ljósbogahættur, örugg vinnubrögð og persónuhlífar.

Rafmagn getur verið hættulegt og þessar hættur leynast víða, bæði í hugsun og hegðun fólks sem og í búnaði og lögnum. Áhrif rafmagns á mannslíkamann eru oft vanmetin og þekking starfsfólks og annarra á þessum áhrifum er oft lítil. Farið er yfir helstu hættur, hvernig hægt er að forðast hætturnar og hvaða tól og tæki hægt er að nýta til að auka öryggi í kringum rafmagn.

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/rafmagnsoryggi
