---
title: "Netþjónusta - Rekstrartækni (OT) - Fortinet"
description: "OT námskeið sem er sniðið úr atvinnulífinu í samstarfi við Fortinet Á þessu námskeiði er lögð áhersla á OT-net (Operational Technology), oft nefnd rekstrartækni(RT). Slík net gegna lykilhlutverki í…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/netthjonusta-taeknikerfi-ot"
---

# Netþjónusta - Rekstrartækni (OT) - Fortinet

![Netþjónusta - Rekstrartækni (OT) - Fortinet](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/5f12aeff-b040-46e2-aa72-bc902c43b5b5)

#### **OT námskeið sem er sniðið úr atvinnulífinu í samstarfi við Fortinet**

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á OT-net (Operational Technology), oft nefnd rekstrartækni(RT). Slík net gegna lykilhlutverki í iðnaðarumhverfum – s.s. í verksmiðjum, orkustöðvum og álverum – þar sem öryggi og áreiðanleiki eru í forgrunni. Ólíkt hefðbundnum upplýsingakerfum (UT/IT), þar sem megináherslan er á aðgengi og trúnað gagna, geta truflanir í OT-kerfum haft alvarlegar afleiðingar, jafnvel hættulegar.

Námskeiðið er þróað í samstarfi við Fortinet og veitir innsýn í hvernig OT-kerfi eru annars eðlis en IT-kerfi. Nemendur fá kynningu á helstu öryggishættum og hvernig bregðast skuli við þeim með viðeigandi tækni og verklagi.

#### **Verkleg vinna og raunveruleg dæmi**

Kennt verður bæði í sýndarumhverfi og í staðbundnu lab-umhverfi þar sem nemendur vinna raunhæf verkefni. Notast verður við Fortinet-búnað og lausnir, t.d. FortiNAC, FortiAuthenticator, FortiEMS og annan iðnaðar netbúnað, til að sýna hvernig hægt er að greina, vakta og stýra netumhverfi.

#### **Innihald og áherslur**

- Munurinn á IT og OT kerfum – verklag, áherslur og áhættur
- SD-Branch og forstilling búnaðar fyrir einfaldari uppsetningu
- Skýjalausnir og fjarstýring um eldveggi
- Bestun á uppsetningu margra eininga samtímis
- Úrval búnaðar fyrir mismunandi aðstæður: skrifstofur, verksmiðjur, hótel o.fl.
- Grunnatriði WiFi kerfa – hönnun, stýring og GUI viðmót
- Tæknileg hugtök: RF, Bandwidth, S/N hlutfall, Guard Interval og truflanagreining

#### **Fyrir hverja?**

Námskeiðið hentar öllum sem vilja öðlast skilning á OT-umhverfi og geta tekið faglegar ákvarðanir varðandi hönnun, uppsetningu og bilanaleit í samræmi við reglur og staðla. Einnig gagnast það þeim sem starfa með WiFi og minni netkerfum og vilja efla verklega færni sína.

#### **Undanfari**

Gert er ráð fyrir grunnskilningi á netkerfum. Mælt er með að þátttakendur hafi lokið FCF og FCA sjálfsnámskeiðum Fortinet (gjaldfrjáls), en það er ekki skilyrði. Til að taka FCF og FCA prófin þarf að stofna aðgang hjá [Fortinet Training Institute](https://training.fortinet.com/) og byrja námskeiðin.

Kennt verður frá mánudegi til miðvikudags frá 8:30 - 16:30. Námskeiðið er í heild 3 dagar.

Kennari er Ingólfur Andri Ágústsson

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/netthjonusta-taeknikerfi-ot
