---
title: "Hljóðmagnarar - Fræðilegur hluti"
description: "Langar þig að smíða hljóðmagnara – eða kannski bara rifja upp fræðin? Námskeið í hljóðmagnarafræðum hluti A, fræðilegur undirbúningur fyrir smíði hljóðmagnara í hluta B. Markmið námskeiðsins er að…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/hljodmagnarar-fraedilegur-hluti"
---

# Hljóðmagnarar - Fræðilegur hluti

<a id="langar-thig-ad-smida-hljodmagnara-eda-kannski-bara-rifja-upp-fraedin"></a>

### **Langar þig að smíða hljóðmagnara – eða kannski bara rifja upp fræðin?**

Námskeið í hljóðmagnarafræðum hluti A, fræðilegur undirbúningur fyrir smíði hljóðmagnara í hluta B.

Markmið námskeiðsins er að nemendur læri/rifji upp fræðin í tengslum við uppmögnun hljóðs með það fyrir augum að geta hannað og smíðað hágæða magnara.

Þessi hluti námskeiðsins er eingöngu fræðilegur, B-hluti námskeiðsins er svo eingöngu verklegur.

**Lota 1** Inngangur

**Lota 2** Helstu tengingar **Lota 3** Inngangsmagnarar

**Lota 4** Aflmögnun

**Lota 5** Spennugjafar **Lota 6** Efnisval og (undirbúningur) kynning f. B-hluta.

Skipulagning smíðaáætlunar og efnisþörf fyrir – **B** **hluta**:

A: Kanna þörf nemenda fyrir prentplötur.

B: Undirbúa smíði kassa hérlendis út frá tillögu kennara lagaða að þörf nemanda.

C: Útbúa pöntunarlista fyrir sameiginlega efnispöntun á eftirfarandi efni:

Tengi fyrir inn- og útganga og ac-power

Stilliviðnám og stillitakkar

Spennubreytar fyrir powerstig og inngangsmagnara

Kæliplötur og power mosfetar

Útgangsspennar, spólur, lampar og lampafætur (ef lampar verða fyrir valinu)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/hljodmagnarar-fraedilegur-hluti
