---
title: "Eftirvinnsla hljóðs í kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni."
description: "Á þessu námskeiði er farið yfir allt sem viðkemur hljóðvinnslu á leiknu sjónvarpsefni í DAW (Digital Audo Workstation). Hvað verður farið yfir? Hljóðver. Allur búnaður frá mús til innréttinga. Forrit…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/eftirvinnsla-hljods-i-kvikmyndum-og-leiknu-sjonvarpsefni"
---

# Eftirvinnsla hljóðs í kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni.

![Eftirvinnsla hljóðs í kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni.](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/d86f87c0-3ed9-47c0-8714-934b45f0477e)

Á þessu námskeiði er farið yfir allt sem viðkemur hljóðvinnslu á leiknu sjónvarpsefni í DAW
(Digital Audo Workstation).

**Hvað verður farið yfir?**

Hljóðver. Allur búnaður frá mús til innréttinga.

Forrit og plug inn.

Upptökubúnað sem notaður er utan hljóðvers.

Hvernig tekið er við efni frá klippara og hvernig það er sett inn í DAW.

Hvernig tal er hreinsað og meðhöndlað í DAW.

Hvernig tali af tökustað er skipt út fyrir nýtt tal (ADR)

Hljóðeffekta. (Umhverfis hljóð, áhrifahljóð, leikhljóð (Foley) Hljóðhönnun.

Hvernig er tónlist með höndluð.

Hvað er Dolby Atmos í kvikmyndahúsi og hver er búnaðurinn.

Hvernig er Atmos mix tekið niður í 7.1, 5.1 og stereo.

Hvernig er leiknu sjónvarpsefni skilað til dreifingaraðila, staðlar og stemmur.

Hvernig kemur þú fram við viðskiptavininn.

**Hvernig fer námskeiðið fram?**

Hljóðbútur úr kvikmynd verður unnin frá A-Ö jafnóðum og kennt verður.

Nemendur fá verkefni eftir námskeiðið sem þeir hafa viku til að vinna.

Gefin verður umsögn um hvernig nemandinn vann verkefnið.

Námskeiðið er 3 dagar:

Föstudagur 17:00-20:00

Laugardagur 9:00-17:00

Sunnudagur 9:00-20:00

Kennslan fer fram í Stúdíó Upptekið. Eina Dolby vottaða hljóðveri landsins og eitt af 8 slíkum hljóðverum á Norðurlöndunum.

**Hvað er æskilegt að nemendur hafi?**

Lágmarks þekking á DAW

Gott er að hafa fartölvu með DAW á námskeiðinu.

**Hvað er innifalið?**

Nemendur fá grunn Protools session sem Gunnar notar í eftirvinnslu á leiknu efni.

50 íslensk umhverfishljóð í 5.1 til eigin nota úr safni Gunnars.

Veitingar á meðan á námskeiði stendur.

Kennari er Gunnar Árnason 5-faldur Eddu verðlauna hafi með yfir 35 ára reynslu í faginu.

**Hvað hefur fólk að segja um námskeiðið?**

*"Rosalega gagnlegt og gaman að sjá reynslubolta eins og Gunnar vinna hratt og skipulega, Gunnar er góður kennari og kemur efninu vel til skila."*

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/eftirvinnsla-hljods-i-kvikmyndum-og-leiknu-sjonvarpsefni
