---
title: "CompTIA Linux+ - Inngangur að Linux-stýrikerfum"
description: "CompTIA Linux+ – Fagleg færni í opnum stýrikerfum Þetta hagnýta námskeið er ætlað öllum sem vilja öðlast traustan grunn í Linux stýrikerfum og undirbúa sig fyrir alþjóðlega viðurkennda CompTIA Linux+…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/comptia-linux"
---

# CompTIA Linux+ - Inngangur að Linux-stýrikerfum

![CompTIA Linux+ - Inngangur að Linux-stýrikerfum](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/51b72985-5503-4aa7-8de5-fb5abfab0845)

<a id="comptia-linux-fagleg-faerni-i-opnum-styrikerfum"></a>

### **CompTIA Linux+ – Fagleg færni í opnum stýrikerfum**

Þetta hagnýta námskeið er ætlað öllum sem vilja öðlast traustan grunn í Linux stýrikerfum og undirbúa sig fyrir alþjóðlega viðurkennda CompTIA Linux+ vottun. Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í Linux og þeim sem vilja dýpka færni sína til að vinna við kerfisstjórn og rekstur opinna stýrikerfa.

Markmiðið er að nemendur öðlist djúpan skilning á uppsetningu, stillingum og notkun Linux-stýrikerfa – bæði á skjáborði og netþjónum. Farið er yfir skipanalínu (shell), skráarstjórnun, notendastýringu, netstillingar, kerfisöryggi, hugbúnaðarstýringu og sjálfvirkni í rekstri. Námskeiðið er jafnframt góð undirstaða fyrir starf í DevOps, kerfisrekstri og skýjaumhverfi.

---

<a id="eftir-namskeidid-aettu-nemendur-ad"></a>

### **Eftir námskeiðið ættu nemendur að:**

- Skilja uppbyggingu og grunnvirkni Linux-stýrikerfa
- Vera færir um að setja upp og stilla Linux kerfi, bæði netþjóna og vinnustöðvar
- Nota skipanalínu til að stjórna skrám, ferlum, heimildum og hugbúnaði
- Skilja hvernig notendur, hópar og réttindi eru stjórnuð í Linux
- Þekkja öryggistól og leiðir til að verja kerfi gegn ógnunum
- Geta skrifað einfaldar skriptur og stilla sjálfvirkni
- Setja upp þjónustur og framkvæma bilanagreiningu í daglegum rekstri

---

<a id="kennsluadferdir-og-aherslur"></a>

### **Kennsluaðferðir og áherslur**

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, verkefnum og verklegum æfingum í Linux hermum. Unnið er með raunveruleg dæmi sem tengjast daglegum rekstri og netumhverfi. Notast er við viðurkenndar enskar kennslubækur og opin Linux-umhverfi. Kennt er af reyndum sérfræðingi með reynslu af Linux-rekstri í atvinnulífinu.

Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, frá kl 17:00 - 21:00, á. Námskeiðið er 5 vikur, alls 10 skipti. Kennslan samanstendur af fyrirlestrum og verklegum æfingum frá CompTia. Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af ogjafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.

Fyrsti tími er 29. september 2025 og síðasti tímin er 29. október 2025. Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin "CompTIA Linux+ Study Guide: Exam XK0-006" eftir Richard Bloom.

---

**Forkröfur:** Almenn tölvufærni og grunnskilningur á tölvukerfum (reynsla af skipanalínu er kostur en ekki krafa)
**Lengd námskeiðs:** 40

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/comptia-linux
