---
title: "Cisco Certified Network Professional - CCNP"
description: "CCNP Enterprise námskeiðið er fyrir þátttakendur sem vilja dýpka þekkingu sína á hönnun, uppsetningu, stjórnun og rekstri flóknari netkerfa. CCNP Enterprise er framhaldsgráða fyrir þau sem hafa lokið…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/cisco-certified-network-professional-ccnp"
---

# Cisco Certified Network Professional - CCNP

![Cisco Certified Network Professional - CCNP](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/fd013dbe-e68d-4f81-93c5-2d5c8073a8d5)

CCNP Enterprise námskeiðið er fyrir þátttakendur sem vilja dýpka þekkingu sína á hönnun, uppsetningu, stjórnun og rekstri flóknari netkerfa. CCNP Enterprise er framhaldsgráða fyrir þau sem hafa lokið CCNA. Námið undirbýr þátttakendur fyrir tvö próf í CCNP Enterprise gráðunni: **350-401 ENCOR (Core)** og **300-410 ENARSI (Advanced Routing & Services)**. Cisco CCNP gráðan fæst með því standast tvö próf frá Cisco. Cisco 350-401 ENCOR – Core prófið og annað próf að eigin vali, á þessu námskeiði er undirbúningur fyrir Cisco 300-410 ENARSI prófið.

#### Það sem þú munt læra:

- **Enterprise Architecture & Design**: Hönnunarlíkön, SD-Wan, QoS stillingar, SD-Access.
- **Virtualisering og Netvirkni**: VRF, GRE og IPsec tunneling. Hypervisor, Sýndarvélar og sýndarskiptar.
- **Innviðir neta á lagi 2 og lagi 3**: Layer 2 Trunkar, RTSP, MST. Layer 3 rútun, stilla af OSPFv2/3. Útskýra policy-based rútun.
- **VPN og WAN lausnir**: Þekkja MPLS, stilla og auðkenna DMVPN.
- **Tryggja netöryggi og bilanaleit**: Notkun á SNMP, traceroute, ping og syslog. IPSLA fyrir frammistöðumælinga. Nota Flexible NetFlow.
- **Sjálfvirkni og gervigreind í netrekstri**: Python grunnur fyrir sjálfvirkni. Útskýring á API fyrir Cisco Catalyst Center og SD-WAN Manager. Túlka og skilja REST-API svör.

#### Markmið:

- Uppsetning á beinum og skiptum með Cisco IOS-stýrikerfinu.
- Geta innleitt og stýrt flóknari routing- og switching-stillingar á stærri netkerfum
- Hafa djúpan skilning á hönnun, rekstri og öryggi stærri netkerfa.
- Framkvæmt kerfisbundna bilanagreiningu með Cisco tólum, packet analysis og automation.
- Unnið með og útskýrt sýndavæðingu með LISP, VXLAN og VLAN
- Vera vel undirbúin fyrir **350-401 ENCOR** og **300-410 ENARSI** prófin.

#### Fyrir hverja er námskeiðið:

- Fagaðila í netkerfum sem vilja fá **CCNP vottun**.
- Kerfisstjóra og netstjóra sem starfa með Cisco netbúnað.
- Sérfræðinga sem vilja dýpka þekkingu sína í routing, WAN, VPN, öryggi og automation
- Kerfisstjóra og sérfræðinga sem leita að dýpri skilningi á Cisco netkerfum.

#### Forkröfur:

- Þekking að íglildi [Cisco CCNA](https://www.rafmennt.is/namskeid/cisco-certified-network-associate-ccna)
- Krafist fyrri reynslu af Cisco búnaði.
- Góð færni í IP-netum, CLI og grunn routing/switching
- Almenn þekking á netöryggi er kostur

Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum, frá kl 17:00 - 21:00, **ásamt því að kennsla verður laugardagana 21.mars og 18.apríl milli 10:00 -14:00**. Námskeið er 10 vikur, alls 20 skipti. Kennslan samanstendur af fyrirlestrum og verklegum æfingum í Cisco Networking Academy. Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af ogjafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.

Fyrsti tími er 3. mars 2026 og síðasti tímin er 7. maí 2026. Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin "CCNP Enterprise Core ENCOR 350-401 and Advanced Routing ENARSI 300-410 Official Cert Guide Library" sem gefin er út af Cisco Press.

**Forkröfur**: Cisco CCNA gráðan eða sambærilegi þekking.

Kennsluefni er á ensku og þurfa nemendur að hafa góð tök á ensku. Nemendur þurfa að hafa grunnþekkingu á Cisco IOS, Cisco Packet Tracer og almenna notendaþekkingu á stýrkerfi þeirra tölvu sem notuð er á námskeiðinu

Kennari er Abdelaziz Ghazal viðurkenndur Cisco System Instructor. Abdelaziz er með eftirfrandi gráður frá Cisco: CCNA, CCNA Security, CCNP og Cisco Certified Internetworking Expert CCIE.

Cisco CCNP gráðan fæst með því standast tvö próf frá Cisco. Cisco 350-401 ENCOR – Core prófið og annað próf að eigin vali, á þessu námskeiði er undirbúningur fyrir Cisco 300-410 ENARSI prófið, standist nemandi bæði þessi próf fær hann CISCO CCNP Enterprise gráðuna. Hægt er að taka próf í hverri viku hjá viðkenndum prófstöðvum.

**[Athygli er vakin á því að námskeið CCNA er komið á dagskrá fyrir vorönn 2026](https://www.rafmennt.is/namskeid/cisco-certified-network-associate-ccna)**

---

Námið er styrkhæft af flestum stéttarfélögum.

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/cisco-certified-network-professional-ccnp
