title: "Cisco Certified Network Associate - CCNA"
description: "Undirbúningur fyrir CCNA 200-301 vottunina frá Cisco — grunnhugtök netkerfa, IP-þjónusta, öryggi, sjálfvirkni og forritun. Um námskeiðið CCNA námskeiðið er hannað til að veita þátttakendum þekkingu…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/cisco-certified-network-associate-ccna"

# Cisco Certified Network Associate - CCNA

![Cisco Certified Network Associate - CCNA](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/77c28508-599b-413b-a652-9395ec829ea4)

**Undirbúningur fyrir CCNA 200-301 vottunina frá Cisco — grunnhugtök netkerfa, IP-þjónusta, öryggi, sjálfvirkni og forritun.**

### Um námskeiðið

CCNA námskeiðið er hannað til að veita þátttakendum þekkingu og færni tengda grunnhugtökum netkerfa, aðgengi að netkerfum, IP-þjónustum, grundvallaratriðum er varðar öryggi, sjálfvirkni og forritun þeirra. Þetta námskeið hjálpar einnig þátttakendum að undirbúa sig fyrir CCNA 200-301 prófið ásamt því að öðlast nauðsynlega þekkingu og færni til að geta skipulagt, hannað, stillt, hámarkað og leyst úr algengum tengivandamálum netkerfa tengdum TCP/IP, DNS, DHCP, STP, HSRP, IP-samskiptareglum eins og RIPv2, OSPF, EIGRP og BGP. Enn fremur styður þetta námskeið kennara og leiðbeinendur í kennslu á námsefni CCNA námskrárinnar. Námið er líka undirbúningur fyrir próf í 200-301 CCNA – Cisco Certified Network Associate fyrir þau sem hafa áhuga á að ná þeirri gráðu.

### Það sem þú munt læra

- **Grunnatriði netkerfa:** Lærir um OSI- og TCP/IP-líkönin, IPv4, IPv6, IP-töluúthlutun og undirnet (subnet).
- **Cisco búnaður:** Kynnist notkun á Cisco beinum (router) og skiptum (switch) og lærir að stilla þessi tæki fyrir skilvirka netnotkun.
- **Beinar (router):** Lærir um stillingar og virkni helstu rútunar-ferla eins og RIP, EIGRP og OSPF.
- **Skiptar (switch):** Skilja VLAN, trönk, spanning-tree samskiptareglur (STP), Layer 2 skipta og fleira.
- **Öryggi netkerfa:** Innleiða grunnöryggisráðstafanir, þar á meðal ACLs, til að vernda netkerfi.
- **Víðnet (WAN):** Lærir að stilla og stýra WAN-tengingum, þar á meðal með PPP, xDSL og VPN.
- **Greining vandamála:** Kynnist notkun greiningartóla til að leysa vandamál með beinum og skiptum í litlum til meðalstórum netkerfum.
- **Uppsetning:** Hvernig skal setja upp grunnþjónustur fyrir net, eins og DHCP, NAT og VPN.

### Markmið

- Nemendur munu að loknu námskeiði þekkja og skilja uppbyggingu netkerfa og þau tæki og hugbúnað sem notaður er
- Nýta sér undirnettækni (subnetting) bæði á IPv4 og IPv6 netkerfum
- Þekkja og skilgreina helstu samskiptastaðla, með áherslu á TCP og UDP
- Hafa skilning á Layer-2 skiptum, sýndarnetum (VLAN), broadcast
- Skilja rútunar-ferla
- Bilanagreina einföld netkerfi
- Setja upp grunnþjónustur í netkerfi
- Setja upp beina og skipta með Cisco IOS-stýrikerfinu
- Nýta sér aðgengis-lista (access-list) til að stjórna netumferð

### Fyrir hverja er námskeiðið

- Fagaðila í netkerfum sem vilja fá CCNA vottun
- Byrjendur sem vilja öðlast víðtæka þekkingu á uppbyggingu tölvukerfa
- Nemendur í upplýsingatækni og byrjendur sem eru spenntir fyrir því að byggja upp starfsferil í netrekstri
- Kerfisstjóra og sérfræðinga sem leita að dýpri skilningi á Cisco netkerfum

### Forkröfur

- Þekking að ígildi [CompTIA Network+](https://www.rafmennt.is/namskeid/comptia-network)
- Grunnskilningur á netkerfishugtökum (t.d. IP-töluúthlutun, undirnet)
- Ekki er krafist fyrri reynslu af Cisco búnaði

### Kennsluaðferðir og kennari

Kennslan samanstendur af fyrirlestrum og verklegum æfingum í Cisco Networking Academy. Kennslustundir verða teknar upp, þátttakendum gefst því kostur að rifja upp tíma, horfa á fyrirlestra sem þeir hafa misst af og jafnvel tekið hluta eða allt námið í fjarkennslu.

Meðal námsgagna sem nemendur fá afhent er bókin „CCNA 200-301 Official Cert Guide Library" eftir Wendell Odom, gefin út af Cisco Press.

Kennari er Abdelaziz Ghazal, viðurkenndur Cisco System Instructor. Abdelaziz er með eftirfarandi gráður frá Cisco: CCNA, CCNA Security, CCNP og Cisco Certified Internetworking Expert (CCIE).

### Aðrar upplýsingar

**[Athygli er vakin á því að stefnt er á námskeið í CCNP á vorönn 2026.](https://www.rafmennt.is/namskeid/cisco-certified-network-professional-ccnp)**

Cisco CCNA 200-301 gráðan fæst með því að standast próf frá Cisco. Hægt er að taka próf í hverri viku hjá viðurkenndum prófstöðvum.

## **Dagskrá**

10. febrúar – 5. mars: þriðjudagar kl. 08:00–12:00 og miðvikudagar kl. 13:00–17:00. 12. mars – 4. júní: fimmtudagar kl. 08:00–12:00.

| Þriðjudagurinn 10. febrúar 08:00 – 12:00 |

| Þriðjudagurinn 17. febrúar 08:00 – 12:00 |
| Þriðjudagurinn 24. febrúar 08:00 – 12:00 |
| Þriðjudagurinn 3. mars 08:00 – 12:00 |
| Miðvikudagurinn 4. mars 13:00 – 17:00 |
| Fimmtudagurinn 12. mars 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 19. mars 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 26. mars 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 2. apríl 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 9. apríl 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 16. apríl 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 23. apríl 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 30. apríl 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 7. maí 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 14. maí 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 21. maí 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 28. maí 08:00 – 12:00 |
| Fimmtudagurinn 4. júní 08:00 – 12:00 |

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/yfirlit/cisco-certified-network-associate-ccna