---
title: "Vinnuréttur fyrir vinnuveitendur "
description: "Fyrirbyggðu ágreining á vinnustað með skýrri framkvæmd starfsmannamála."
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/vinnurettur-fyrir-vinnuveitendur"
---

# Vinnuréttur fyrir vinnuveitendur

AlmennH2026NSTAR06Vinnuré

Fyrirbyggðu ágreining á vinnustað með skýrri framkvæmd starfsmannamála.

RSÍ endurmenntun**15.000 kr.**

Fullt verð

40.000 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Sveigjanlegt

15. okt. – 19. des.

Tími

Alltaf opið

Staður

Á netinu

Námskeið í samstarfi við [Opna Háskólann í HR](https://www.oh.ru.is/)

<a id="kafli-lysing"></a>

## Lýsing

Þessi námskeiðspakki inniheldur þrjú námskeið um vinnurétt og starfsmannamál sem veita þátttakendum heildstæða þekkingu á réttindum og skyldum vinnuveitenda.

Farið er yfir skipulag íslensks vinnumarkaðar, kjarasamninga, ráðningar, ráðningarsamninga, launamál og starfslok. Áhersla er lögð á hagnýta beitingu vinnuréttar, skýra framkvæmd starfsmannamála og leiðir til að fyrirbyggja ágreining á vinnustöðum.

Raunveruleg dæmi eru nýtt til að efla skilning þátttakenda á helstu áskorunum í starfsmannamálum. Námskeiðspakkinn hentar stjórnendum, atvinnurekendum og öðrum sem koma að starfsmanna- og launamálum. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.

## Kennari

- **Einar Örn Davíðsson**

    Einar Örn stundaði laganám við Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu og Háskóla Íslands, og útskrifaðist árið 2001 sem Cand. jur. Hann öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2003 og varð löggiltur verðbréfamiðlari árið 2005.

    Einar Örn hefur meðal annars starfað hjá hagsmunasamtökum atvinnurekenda og fjármálastofnunum.

<a id="hopar"></a>

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

1. **15–19**okt.–des.

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    15. okt. – 19. des.

    Tími

    Alltaf opið

    Staður

    Á netinu

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736638)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 40.000 kr. |
| --- | --- |
| RSÍ endurmenntun | 15.000 kr. |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[Alltaf opið

Almenn

### Gagnalæsi

Byrjaðu þegar þér hentar](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/gagnalaesi)[**Fullbókað**Laust 15. febrúar 2027

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberLaust 15. febrúar 2027](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/vinnurettur-fyrir-vinnuveitendur
