title: "Tilboðsgerð í opinberum útboðum"
description: "Námskeið sem veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/tilbodsgerd-i-opinberum-utbodum"

# Tilboðsgerð í opinberum útboðum

Almenn · TæknifólkH2026NALMN06TILB

Námskeið sem veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar

Fullt verð**31.200 kr.**

[Skrá áhuga](#ahugi)

Enginn hópur er opinn núna. Við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Lýsing

Námskeiðið veitir **hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar**, með áherslu á lestur og skilning útboðsgagna, hæfiskröfur og mismunandi matsforsendur.

Þátttakendur læra að greina lágmarkskröfur, forðast algeng mistök í tilboðsgerð og gagnaskilum, móta markvissar fyrirspurnir og bregðast við óskýrleika í skilmálum. Námskeiðið hentar þeim sem koma að gerð tilboða í útboðum og vilja auka líkur á gildum og samkeppnishæfum tilboðum.

## Kennari

- **Ólafur Steingrímsson**

Kennari námskeiðsins er **Starfandi skrifstofustjóri hjá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar** (nú Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar). Ólafur hefur 12 ára reynslu af opinberum innkaupum og þar áður reynslu sem innkaupastjóri á einkamarkaðnum. Ólafur hefur starfað sem ráðgjafi á sviði útboðsmála og sérhæfir sig í rýni útboðsgagna og gerð matslíkana.

## Hópar og dagsetningar

**Engir hópar opnir**

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 31.200 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Tæknifólk

### Tæknileg verkefnastjórnun viðburða

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/taeknileg-verkefnastjornun-vidburda-og-skapandi-greina)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/tilbodsgerd-i-opinberum-utbodum