---
title: "Tæknileg verkefnastjórnun viðburða"
description: "Námskeiðið er sett saman til að veita þér innsýn og grunnþekkingu sem þarf til að stýra flóknum verkefnum á skilvirkan og faglegan hátt – allt frá fyrstu hugmynd að afhendingu og uppgjöri. Á…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/taeknileg-verkefnastjornun-vidburda-og-skapandi-greina"
---

# Tæknileg verkefnastjórnun viðburða

TæknifólkH2026NMVST08VIÐSVIÐ

RSÍ endurmenntun**11.640 kr.**

Fullt verð

31.200 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

26. nóvember

Tími

kl. 09:00–16:00

Dagar

Fimmtudagur

Staður

Stórhöfði 27

Námskeiðið er sett saman til að veita þér innsýn og grunnþekkingu sem þarf til að stýra flóknum verkefnum á skilvirkan og faglegan hátt – allt frá fyrstu hugmynd að afhendingu og uppgjöri. Á námskeiðinu kynnumst við lykilverkfærum eins og heilaga þríhyrningnum (scope–time–cost), Gantt- og WBS-uppsetningum, áhættumati og breytingastjórnun sem tryggja fullkomna yfirsýn og stöðugan framgang verkefna til að hámarka nýtingu tíma og peninga.

Með raunhæfum dæmum úr viðburðageiranum og alþjóðlega gæðastaðla til hliðsjónar (IPMA, PMI, PRINCE2, Agile/Scrum) lærir þú hvernig á að virkja teymi, efla opið samskiptaumhverfi og hámarka sköpunarkraft í tæknilega krefjandi og kviku umhverfi. Við förum yfir mikilværi væntingastjórnunar ásamt teymismyndanir og annmarka þeirra og skoðum hvernig við getum verið hvetjandi en agaðir leiðtogar í senn.

Í hópverkefnum og verkefnaæfingum færðu svo tækifæri til að æfa þig í hverju skrefi með leiðsögn – frá undirbúningi fyrstu hugmyndar og skipulagi tímaáætlunar, yfir í framkvæmd og lokafrágang.

#### Þekkingarviðmið

- **Skilningur á verkefnastjórnun** – Nemandi getur útskýrt hvað felst í verkefni og verkefnastjórnun, þar á meðal helstu takmarkanir (tími, kostnaður, umfang) og tilgang verkefna í samhengi við virðisaukasköpun.
- **Hæfni í áætlunargerð og þarfagreiningu** – Nemandi getur greint þarfir og sett fram tíma- og kostnaðaráætlanir, skilgreint „scope“ verkefna og unnið með algeng verkfæri úr kerfum eins og IPMA.
- **Færni í teymisvinnu og leiðtogahæfni** – Nemandi getur lýst einkennum góðra og slakra teyma, skipulagt verkefnateymi með tilliti til þarfagreiningar og tilætlaðs árangurs.
- **Að beita árangursríkum samskiptaleiðum** – Nemandi þekkir mismunandi samskiptamynstur, getur metið áhrif þeirra á framvindu verkefna og tileinkað sér ákveðna og árangursmiðaða samskiptahætti.
- **Framkvæmd og eftirfylgni verkefna** – Nemandi getur stýrt framvindu verkefna, fylgst með vörðum og árangursmælikvörðum og brugðist við frávikum með markvissum hætti.
- **Lok, greining og lærdómur** – Nemandi getur unnið uppgjör, metið árangur og dregið lærdóm úr verkefnum til að bæta vinnulag og ferla í framtíðinni.

#### Leikniviðmið

- Uppbygging og eðli verkefna
- Mat og áætlanagerð
- Nálgun teymismyndunar og samskipti
- Vörður og eftirfylgni.

#### Námsmat

Námskeiðið endar með lokaverkefni til endurgjafar með staðfestingu á námskeiðslokum.

#### Upplýsingar

Kennari á námskeiðinu er G. Orri Rósenkranz verkefnastjóri sem hefur áralanga reynslu af tæknilegri hönnun, skipulagningu og verkefnastjórn viðburða af öllum stærðum og gerðum.

![Tæknileg verkefnastjórnun viðburða](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/5ebe7644-e452-4d9f-88fa-6346c8237fc8)

## Kennarar

- **Guðmundur Orri R. Sævarsson**
- **Ingi Bekk Jóhannesson**

<a id="hopar"></a>

## Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

1. **26**nóv.

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    26. nóvember · Fimmtudagur

    Tími

    kl. 09:00–16:00

    Staður

    Stórhöfði 27

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/725300)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 31.200 kr. |
| --- | --- |
| RSÍ endurmenntun | 11.640 kr. |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[Almenn · Tæknifólk

### ESP32 örtölvan

Kynntu þér ESP32 og nýttu möguleika örtölvunnar í snjallar og skapandi lausnir.

3. mars 2027](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/esp32-ortolvan)[Almenn · Tæknifólk

### Home Assistant - Grunnur

Kynntu þér Home Assistant og lærðu að stjórna heimilinu með einföldum sjálfvirknilausnum

9. mars 2027](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/home-assistant-husstjornarkerfi)[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/taeknileg-verkefnastjornun-vidburda-og-skapandi-greina
