title: "Öryggismenning"
description: "Miklar framfarir hafa náðst síðustu áratugi í efnislegu og tæknilegu öryggi á vinnustöðum t.d. við hönnun vinnustaða, véla og tækja. Til þess að ná lengra í öryggismálum og fækka vinnuslysum enn…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/oryggismenning-vn"

# Öryggismenning

AlmennH2026NÖRYG02MENN

Fullt verð**22.500 kr.**

RSÍ endurmenntun

7.875 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

9. desember

Tími

kl. 13:00–15:00

Dagar

Miðvikudagur

Staður

Google Meet

Námskeið í samstarfi við [Vinnuverndarnámskeið ehf.](https://vinnuverndarnamskeid.is/)

Miklar framfarir hafa náðst síðustu áratugi í efnislegu og tæknilegu öryggi á vinnustöðum t.d. við hönnun vinnustaða, véla og tækja. Til þess að ná lengra í öryggismálum og fækka vinnuslysum enn frekar þarf að beita nýjum aðferðum.

Það þarf að skoða sálræna og félaglega þætti í samspili við vinnuskipulag og vinnuumhverfi.

Á þessu námskeiði er gerð grein fyrir því hvernig hægt er að innleiða öryggismenningu á vinnustað, þ.e. breyta hugsun og hegðun starfsmanna og stjórnenda til langs tíma.Efnið er byggt á sænskri aðferðafræði sem kallast „Byggt á öryggi“ en gefin var út bæklingur árið 2009 með sama heiti. Hugmyndafræði „Safety II“ verður einnig kynnt.

### Uppbygging

Námskeið Vinnuverndarskóla Íslands byggjast upp á vendinámi. Þegar nemendur skrá sig á námskeiðið fá þeir senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í kennslustofu. Nemendur mæta undirbúnir í kennslustofu. Þar byrjar kennari á því að fara stuttlega yfir aðalatriði efnisins, svo eru umræður og unnin verða verkefni.

### Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er hugsað fyrir lengra komna í vinnuverndarmálum, t.d. öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði, verkstjóra og stjórnendur. Gert er ráð fyrir því að nemendur þekki hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða og kunni góð skil á áhættumati.

### Ávinningur

Þátttakendur kynnast nýrri hugmyndafræði til að auka öryggi á vinnustaðnum og fækka vinnuslysum.

### Lengd

Undirbúningur heima eða á vinnustað og 2 klst. í kennslustofu.

### Fjarkennslan fer fram í rauntíma í gegnum fjarfundarbúnað

Nánari upplýsingar veitir [Guðmundur Kjerúlf](mailto:info@vinnuverndarnamskeid.is), forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í kennslustofu. Innifalið eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í kennslustofu.

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

1. **9**des.

### Hópur 1

Dagsetning

9. desember · Miðvikudagur

Tími

kl. 13:00–15:00

Staður

Google Meet

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/728815)

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 22.500 kr. |

| RSÍ endurmenntun | 7.875 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/oryggismenning-vn