title: "Merking vinnusvæða"
description: "Um námskeiðið Staðnám með möguleika á fjarnámi Námskeið um hönnun og útfærslu á merkingum fyrir umferð vegna framkvæmda. Það er mikilvægt að slíkar merkingar séu samræmdar, bæði gagnvart starfsmönnum…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/merking-vinnusvaeda"

# Merking vinnusvæða

AlmennH2026N · V2027NÖRYG16Merk vinnusv

RSÍ endurmenntun**37.000 kr.**

Fullt verð

106.000 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

1.–2. febrúar 2027

Tími

kl. 09:00–17:00

Dagar

Mánudagur og þriðjudagur

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Hópar í boði

5

Námskeið í samstarfi við [Opna Háskólann í HR](https://www.oh.ru.is/)

## Um námskeiðið

### Staðnám með möguleika á fjarnámi

Námskeið um hönnun og útfærslu á merkingum fyrir umferð vegna framkvæmda. Það er mikilvægt að slíkar merkingar séu samræmdar, bæði gagnvart starfsmönnum og vegfarendum.

Á þessu námskeiði er farið yfir helstu þætti sem þarf að hafa í huga á vinnusvæðum, eins og umferðarstjórn, lagaumhverfi, öryggisbúnað og merkingar, eftirlit og fleira.

Starfsmenn Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar sem koma að merkingu vinnusvæða, ásamt verktökum, hönnuðum og eftirlitsmönnum sem tengjast verkefnum á þeirra vegum, verða að ljúka þessu námskeiði. Í lok námskeiðs þreyta þátttakendur próf til réttinda.

### Efnisþættir námskeiðsins

- Lög og reglugerðir, flokkun vega og gatna, umferðarmerki, flokkun og tegundir, umferðarstjórn
- Vinnusvæðið, umgengnisreglur, framkvæmd, ábyrgð og eftirlit
- Rammareglur um merkingar vinnusvæðis / framkvæmdasvæðis
- Varnar- og merkingarbúnaður, ljósabúnaður, merkjavagnar, vinnutæki og öryggisbúnaður
- Lagnavinna o.fl., leyfisskyldar framkvæmdir á vegsvæðum
- Vinnustaðamerkingar á tveggja til sex akreina vegum og við staðbundna/hreyfanlega vinnu
- Magntaka, kostnaðaráætlanir, gæðaúttektir og févíti

### Fyrirkomulag

Allt kennsluefni er í rafrænu formi og prófin líka. Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi háskólans og þurfa því að hafa afnot af tölvu með aðgengi að PowerPoint forritinu.

Námið er hannað sem **staðarnám**. Fyrir þau sem búa úti á landi bjóðum við upp á að fylgjast með kennslunni í gegnum Zoom. Í slíkum tilfellum fer kennslan samtímis fram í kennslustofu og í gegnum Zoom fjarfundarbúnað í rauntíma. Kennslan er ekki tekin upp.

### Réttindapróf

Í lok námskeiðsins þreyta þátttakendur próf til réttinda. Þeir þátttakendur sem standast prófið fá prófskírteini sem gildir í 5 ár. Þeir sem eru með skírteini eldra en 5 ára þurfa að endurnýja sín á þessu námskeiði, en boðið er upp á styttra námskeið til endurnýjunar réttinda fyrir þá sem eru með skírteini síðan fyrir 5 árum eða skemur.

### Um merkingu vinnusvæða

Í [reglugerð um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg](https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/492-2009), sem kom út árið 2009, var meðal annars kveðið á um að Vegagerðinni væri falið að skrifa nánari reglur um útfærslu og framkvæmd vinnusvæðamerkinga. Í reglunum eru strangar kröfur um þekkingu og réttindi þeirra sem koma að þessum málum. Þar kemur fram að allir þeir sem koma að merkingu vinnusvæða frá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg, og þeir verktakar, hönnuðir og eftirlitsmenn sem tengjast verkefnum á þeirra vegum, þurfa að hafa sótt námskeiðið Merking vinnusvæða og lokið prófi eins og gerðar eru kröfur um í reglugerðinni.

### Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er ætlað þeim verkkaupum, hönnuðum, verktökum og eftirlitsmönnum sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja, svo og öðrum þeim stofnunum og fyrirtækjum sem vinna að framkvæmdum á eða við vegsvæði.

### Skipulagið

Námið er 16 klst. og kennt er tvo daga í röð frá kl. 9–17.

Kennsla fer fram sem staðarnám. Möguleiki er á að fylgjast með kennslunni í gegnum Zoom fjarfundabúnað í rauntíma, fyrir þá sem komast ekki á staðinn, en mælt er með því að mæta á staðinn. Kennslan er ekki tekin upp. Vinsamlegast athugið að námskeiðið er haldið í Háskólanum í Reykjavík.

### Hagnýtar upplýsingar

Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi HR þar sem allt kennsluefnið er. Nauðsynlegt er að taka með sér eigin tölvu á námskeiðið með aðgengi að PowerPoint forritinu.

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.

## **Dagskrá**

Dagsetningar auglýstar síðar.

## **Leiðbeinendur**

**Ylfa Rakel Ólafsdóttir**
Verkefnastjóri – Vegagerðin

**Björgvin Rafn Sigurðarson**
Deildarstjóri afnota- og eftirlits – Reykjavíkurborg

**Höskuldur Tryggvason**
Verkefnastjóri – Vegagerðin

**Víkingur Guðmundsson**
Sérfræðingur, úttektir og eftirfylgni – Vegagerðin

**Stefán Þór Pétursson**
Verkfræðingur – Vegagerðin

**Bjarni Rúnar Ingvarsson**
Samgönguverkfræðingur – Reykjavíkurborg

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

1. **1–2**feb.2027

### Hópur 1

Dagsetning

1.–2. febrúar 2027 · Mánudagur og þriðjudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736832)
2. **1–2**mars2027

### Hópur 2

Dagsetning

1.–2. mars 2027 · Mánudagur og þriðjudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736833)
3. **22–23**mars2027

### Hópur 3

Dagsetning

22.–23. mars 2027 · Mánudagur og þriðjudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736834)
4. **19–20**apr.2027

### Hópur 4

Dagsetning

19.–20. apríl 2027 · Mánudagur og þriðjudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736835)
5. **3–4**maí2027

### Hópur 5

Dagsetning

3.–4. maí 2027 · Mánudagur og þriðjudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736836)

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 106.000 kr. |

| RSÍ endurmenntun | 37.000 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**Laust 15. febrúar 2027

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberLaust 15. febrúar 2027](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/merking-vinnusvaeda