title: "Merking vinnusvæða - Endurnýjun réttinda"
description: "Um námskeiðið Staðnám með möguleika á fjarnámi Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með 5–10 ára gömul skírteini og hafa jafnframt unnið talsvert við vinnusvæðamerkingar síðastliðin ár og telja sig ekki…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/merking-vinnusvaeda-oryg08merk-vinnusv-em"

# Merking vinnusvæða - Endurnýjun réttinda

AlmennH2026N · V2027NÖRYG08Merk vinnusv em

RSÍ endurmenntun**22.000 kr.**

Fullt verð

62.000 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

3. mars 2027

Tími

kl. 09:00–17:00

Dagar

Miðvikudagur

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Hópar í boði

2

Námskeið í samstarfi við [Opna Háskólann í HR](https://www.oh.ru.is/)

## Um námskeiðið

### Staðnám með möguleika á fjarnámi

Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með 5–10 ára gömul skírteini og hafa jafnframt unnið talsvert við vinnusvæðamerkingar síðastliðin ár og telja sig ekki þurfa upprifjun á grunnatriðum.

Yfirferðin á þessu námskeiði er það sama og kennt er á **seinni degi** á tveggja daga/fullu námskeiði ***Merking vinnusvæða***. [Kennsluáætlun – Endurnýjun réttinda](https://reykjavikuniversity.sharepoint.com/:b:/t/ohdocs/ER4HQ8k75v5Js7DeIgKZ7q4BIRr9SUXC5sw-9O4Sd7JAGg?e=mxznkY)

Það sem farið er yfir á fyrri degi á tveggja daga/fullu námskeiði í ***Merkingu vinnusvæða***, en **ekki** á þessu ***Endurnýjun réttinda – Merking vinnusvæða*** námskeiði, má sjá hér: [Kennsluáætlun – Fyrri dagur á grunnnámskeiði](https://reykjavikuniversity.sharepoint.com/:b:/t/ohdocs/EZFUNb4VUDBOsCCTZo7fRvsBjdCEPHvPL85ORidEvk9fPw?e=9vpeP9)

Mikilvægt er að hafa í huga að **sömu kröfur** eru gerðar á prófi (hliðstætt próf, krossapróf og verkefni) hvort sem um er að ræða eins dags (endurnýjun réttinda) eða tveggja daga námskeið (grunnnámskeið).

### Réttindapróf

Í lok námskeiðsins þreyta þátttakendur próf til réttinda. Þeir þátttakendur sem standast prófið fá prófskírteini sem gildir í 5 ár.

### Prófað er úr öllu því námsefni sem farið er yfir í fullu tveggja daga námskeiði.

Þeir nemendur sem velja styttra námskeiðið munu fá afhent öll kennslugögn og æfingapróf sem notuð eru á fyrri degi í fullu námskeiði.

### Um merkingu vinnusvæða

Í [reglugerð um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg](https://island.is/reglugerdir/nr/0492-2009), sem kom út árið 2009, var meðal annars kveðið á um að Vegagerðinni væri falið að skrifa nánari reglur um útfærslu og framkvæmd vinnusvæðamerkinga. Í reglunum eru strangar kröfur um þekkingu og réttindi þeirra sem koma að þessum málum. Þar kemur fram að allir þeir sem koma að merkingu vinnusvæða frá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg, og þeir verktakar, hönnuðir og eftirlitsmenn sem tengjast verkefnum á þeirra vegum, þurfa að hafa sótt námskeiðið Merking vinnusvæða og lokið prófi eins og gerðar eru kröfur um í reglugerðinni.

### Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með 5–10 ára gömul skírteini sem renna út 1. mars nk. og hafa jafnframt unnið talsvert við vinnusvæðamerkingar síðastliðin ár og telja sig ekki þurfa upprifjun á grunnatriðum.

### Skipulagið

Kennsla fer fram sem staðarnám. Möguleiki er á að fylgjast með kennslunni í gegnum Zoom fjarfundabúnað í rauntíma, fyrir þá sem komast ekki á staðinn, en mælt er með því að mæta á staðinn. Kennslan er ekki tekin upp.

### Hagnýtar upplýsingar

Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi HR þar sem allt kennsluefnið er. Nauðsynlegt er að taka með sér eigin tölvu á námskeiðið með aðgengi að PowerPoint forritinu.

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.

## **Dagskrá**

Eitt skipti í boði.

| Miðvikudagurinn 4. nóvember 09:00 – 17:00 |

## **Leiðbeinendur**

**Ylfa Rakel Ólafsdóttir**
Verkefnastjóri – Vegagerðin

**Björgvin Rafn Sigurðarson**
Deildarstjóri afnota- og eftirlits – Reykjavíkurborg

**Höskuldur Tryggvason**
Verkefnastjóri – Vegagerðin

**Víkingur Guðmundsson**
Sérfræðingur, úttektir og eftirfylgni – Vegagerðin

**Stefán Þór Pétursson**
Verkfræðingur – Vegagerðin

**Bjarni Rúnar Ingvarsson**
Samgönguverkfræðingur – Reykjavíkurborg

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

1. **3**mars2027

### Hópur 1

Dagsetning

3. mars 2027 · Miðvikudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736830)
2. **5**maí2027

### Hópur 2

Dagsetning

5. maí 2027 · Miðvikudagur

Tími

kl. 09:00–17:00

Staður

Opni Háskólinn - Menntavegur 1

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736831)

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 62.000 kr. |

| RSÍ endurmenntun | 22.000 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/merking-vinnusvaeda-oryg08merk-vinnusv-em