---
title: "Home Assistanr - Grunnur"
description: "Kynntu þér Home Assistant og lærðu að stjórna heimilinu með einföldum sjálfvirknilausnum"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/home-assistant-husstjornarkerfi"
---

# Home Assistanr - Grunnur

Almenn · TæknifólkV2027NSTÝR12HOMEASSIS

Kynntu þér Home Assistant og lærðu að stjórna heimilinu með einföldum sjálfvirknilausnum

RSÍ endurmenntun**19.900 kr.**

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

9.–23. mars 2027

Tími

kl. 17:00–21:00

Dagar

Þriðjudagar

Staður

Stórhöfði 27

<a id="kafli-lysing"></a>

## Lýsing

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á Home Assistant hússtjórnarkerfinu og læra að setja upp, tengja og stjórna snjalltækjum. Farið er yfir uppsetningu kerfisins, samþættingu snjalltækja, gerð einfaldra sjálfvirknireglna og uppbyggingu skjáborða.

Áhersla er lögð á verklegar æfingar þar sem þátttakendur vinna með Home Assistant og fjölbreyttan snjallbúnað.

Námskeiðið hentar öllum sem hafa góða almenna tölvukunnáttu og vilja kynnast möguleikum snjallheimila, án þess að forritunarkunnátta sé nauðsynleg.

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast færni til að setja upp eigið kerfi og þróa það áfram. Þátttakendur fá einnig USB-samskiptakubb fyrir Zigbee og Thread til eignar.

## Kennari

- **Alexander Eck**

    Alexander Eck hefur yfir áratugs reynslu af upplýsingatækni, tækniráðgjöf og innleiðingu tæknilausna. Hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga, meðal annars við ráðgjöf, uppsetningu kerfa, lausn tæknilegra áskorana og kennslu.

    Alexander hefur um árabil sérhæft sig í sjálfvirknilausnum og sett upp fjölda kerfa sem byggja á Home Assistant og annarri snjalltækni. Hann hefur víðtæka reynslu af samþættingu snjalltækja og þróun lausna sem einfalda daglegt líf og bæta nýtingu tækninnar.

    Alexander leggur áherslu á hagnýta kennslu og að útskýra flókin tæknileg viðfangsefni á skýran og aðgengilegan hátt.

<a id="hopar"></a>

## Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

1. **9–23**mars2027

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    9.–23. mars 2027 · Þriðjudagar

    Tími

    kl. 17:00–21:00

    Staður

    Stórhöfði 27

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/738743)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| RSÍ endurmenntun | 19.900 kr. |
| --- | --- |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**Laust 23. nóvember

Almenn

### Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind

Viltu nýta Claude gervigreind til að spara tíma, bæta gæði og auka framleiðni í starfi?

29. októberLaust 23. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/claude)[Almenn

### Kunnáttumenn

26. október](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/kunnattumenn)[Almenn

### Öryggistrúnaðarmenn og -verðir

26. októberHópur 2](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/oryggistrunadarmenn-og-verdir-vn)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/home-assistant-husstjornarkerfi
