title: "Hjólaviðgerðir"
description: "Lærðu að sinna grunnviðhaldi reiðhjóla og meta viðgerðarþörf."
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/hjolavidgerdir"

# Hjólaviðgerðir

AlmennH2026NALMN10HJÓL

Lærðu að sinna grunnviðhaldi reiðhjóla og meta viðgerðarþörf.

Fullt verð**39.900 kr.**

[Skrá áhuga](#ahugi)

Enginn hópur er opinn núna. Við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Lýsing

Viltu læra að sinna viðhaldi á eigin reiðhjóli eða rifja upp gamla takta?

Námskeiðið hentar öllum sem vilja öðlast grunnþekkingu á viðhaldi og einföldum viðgerðum reiðhjóla, hvort sem þeir eru byrjendur eða hafa einhverja reynslu. Það er tilvalið fyrir hjólreiðafólk og fjölskyldur sem vilja geta sinnt viðhaldi hjóla heimilisins sjálf.

Þú lærir að stilla, yfirfara og sinna grunnviðhaldi reiðhjóla ásamt því að framkvæma einfaldar öryggisskoðanir og meta viðgerðarþörf.

Áhersla er lögð á verklega þjálfun þar sem þú vinnur með eigið hjól á þínum hraða undir leiðsögn.

Engin forkunnátta er nauðsynleg og aðeins sex þátttakendur eru á námskeiðinu.

## Hópar og dagsetningar

**Engir hópar opnir**

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 39.900 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/hjolavidgerdir