title: "Grunnnámskeið vinnuvéla"
description: "Öryggi og stjórnbúnaður vinnuvéla með stuttum fyrirlestrum og verkefnum."
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/gunnnamskeid-vinnuvela-vn"

# Grunnnámskeið vinnuvéla

AlmennH2026NVINN80GRUNN

Öryggi og stjórnbúnaður vinnuvéla með stuttum fyrirlestrum og verkefnum.

RSÍ endurmenntun**25.550 kr.**

Fullt verð

73.000 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Sveigjanlegt

15. okt. – 20. des.

Tími

Alltaf opið

Staður

Google Meets

Námskeið í samstarfi við [Vinnuverndarnámskeið ehf.](https://vinnuverndarnamskeid.is/)

*Stundum kallað „Stóra námskeiðið"*

Námskeiðið veitir bókleg réttindi á allar stærðir og gerðir vinnuvéla sem eru réttindaskyldar á Íslandi. Íslensk réttindi eru viðurkennd víðast hvar í Evrópu.

Námskeiðið fer **99% fram í fjarnámi**, aðeins lokaprófið er í kennslustofu hjá Rafmennt, á vinnustöðum eða í fjarnámsmiðstöð eftir samkomulagi. Allir sem eru orðnir 16 ára geta tekið námskeiðið en til að fá fullgild vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.

**Þátttakendur geta byrjað á námskeiðinu þegar þeir vilja og lært þegar þeir vilja.** Hægt er að horfa á námsefnið og leysa verkefni eins oft og hver vill.

Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, ítarefni, verkefnum sem eru krossaspurningar og krossaprófum. Það þarf að leysa verkefnin og standast prófin til að geta haldið áfram á námskeiðinu. Skólinn hvetur nemendur til að halda sig að náminu og ljúka að jafnaði 1–4 köflum á dag.

Að námskeiðinu loknu geta þátttakendur hafið verklegt nám á allar gerðir réttindaskyldra vinnuvéla undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur kennsluréttindi. Að verklegri þjálfun lokinni er óskað eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu. Vinnueftirlitið gefur út vinnuvélaskírteini. Öll verkleg þjálfun og próf fara fram á vinnustöðum.

### Uppbygging námskeiðsins

1. Kynning, vinnuverndarlög, reglur og reglugerðir
2. Vinnuverndarstarf og sálfélagslegt vinnuumhverfi — *Próf úr köflum 1 og 2*
3. Hættuleg efni, inniloft og loftræsting, hávaði og lýsing
4. Vélfræði, vökvafræði, rafgeymar og hleðsluklefar fyrir rafgeyma
5. Eðlisfræði, uppstilling og stöðugleiki vinnuvéla, ásláttarbúnaður — *Próf úr köflum 3 til 5*
6. Hífivír, stjórnbúnaður krana, að hífa fólk með krana og merkjakerfi fyrir kranastjórn
7. Byggingakranar og hafnarkranar í skráningarflokki A
8. Hleðslukranar í skráningarflokkum B og P
9. Brúkranar í skráningarflokki C
10. Steypudælukranar og körfukranar í skráningarflokki D — *Próf úr köflum 6 til 10*
11. Öryggi við skurðgröft
12. Gröfur og traktorsgröfur í skráningarflokki E
13. Ámokstursskóflur í skráningarflokki F
14. Jarðýtur í skráningarflokki G
15. Vegheflar í skráningarflokki H
16. Jarðvinnuvélar undir 4 tonnum og dráttarvélar í skráningarflokki I — *Próf úr köflum 11 til 16*
17. Lyftarar og lyftitæki í skráningarflokkum J og K
18. Að lyfta fólki með lyftara — *Próf úr köflum 17 og 18*
19. Valtar, útlagningarvélar og fræsarar í skráningarflokkum L og M — *Próf úr kafla 19*
20. Lokaorð

### Bóklegt lokapróf

Bókleg lokapróf eru haldin hjá Rafmennt, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík.

## **Dagskrá – próftökudagar**

Námskeiðið sjálft er á eigin hraða — þessar dagsetningar eru fyrir bóklega lokaprófið eitt og sér, kl. 16:00.

### Nóvember

| 11. nóvember |

| 25. nóvember |

### Desember

| 16. desember |

### Janúar 2027

| 6. janúar |

| 20. janúar |

## **Gott að vita**

**Fyrirkomulag kennslu:** Fjarnám, myndbandsverkefni

**Námsmat:** Lokapróf

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

1. **15–20**okt.–des.

### Hópur 1

Dagsetning

15. okt. – 20. des.

Tími

Alltaf opið

Staður

Google Meets

Verð

[Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

[Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/735354)

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 73.000 kr. |

| RSÍ endurmenntun | 25.550 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/gunnnamskeid-vinnuvela-vn