---
title: "Gagnalæsi"
description: "Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á gagnalæsi og gagnagreiningu og læra hvernig nýta má gögn til að taka upplýstar og markvissar ákvarðanir. Farið er yfir helstu hugtök gagnalæsis,…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/gagnalaesi"
---

# Gagnalæsi

AlmennH2026NUPTÆ02Gagnal

RSÍ endurmenntun**7.500 kr.**

Fullt verð

21.200 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Sveigjanlegt

15. okt. – 19. des.

Tími

Alltaf opið

Staður

Á netinu

Námskeið í samstarfi við [Opna Háskólann í HR](https://www.oh.ru.is/)

<a id="kafli-lysing"></a>

## Lýsing

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á gagnalæsi og gagnagreiningu og læra hvernig nýta má gögn til að taka upplýstar og markvissar ákvarðanir.

Farið er yfir helstu hugtök gagnalæsis, hvernig gögnum er breytt í gagnlegar upplýsingar og hvernig gagnagreining getur stutt við ákvarðanatöku. Einnig er fjallað um þróun gagnanotkunar og mikilvægi hennar fyrir árangur og samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja efla skilning sinn á gögnum, bæta ákvarðanatöku og öðlast betri forsendur til að nýta upplýsingar í starfi og daglegu lífi. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.

## Kennari

- **Dr. Páll Ríkharðsson**

    [Páll](https://www.linkedin.com/in/pallrikhardsson/) lauk doktorsprófi í viðskiptafræði árið 1997 frá Háskólanum í Árósum og starfaði sem manager og senior manager hjá PricewaterhouseCoopers í Kaupmannahöfn á árunum 1994 til 2000. Þá tók hann við stöðu dósents í reikningshaldi og upplýsingatækni við Háskólann í Árósum þangað til 2007. Frá 2007 til 2013 starfaði Páll sem ráðgjafi hjá fyrirtækjunum SAS Institute, PwC og Herbert Nathan & Co í Kaupmannahöfn. Frá 2012 tók Páll við fullri stöðu dósents við Háskóla Reykjavíkur og varð prófessor og deildarforseti 2016 en gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra Planet Youth. Páll hefur birt fjölda bóka og greina um m.a. upplýsingastjórnun, viðskiptagreind, stjórnunarreikningsskil og innra eftirlit.

<a id="hopar"></a>

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

1. **15–19**okt.–des.

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    15. okt. – 19. des.

    Tími

    Alltaf opið

    Staður

    Á netinu

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736639)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 21.200 kr. |
| --- | --- |
| RSÍ endurmenntun | 7.500 kr. |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/gagnalaesi
