---
title: "Fræðsla"
description: "Rafmennt stendur fyrir fræðslu- og kynningarfundum um áhugaverð málefni í raf- og tækniiðnaðinum. Efni þessara fræðslu- og kynningarfunda er oftast ákveðið með litlum fyrirvara og því auglýst hér á…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fraedsla/um-fyrirlestrakvold"
---

# Fræðsla

Rafmennt stendur fyrir fræðslu- og kynningarfundum um áhugaverð málefni í raf- og tækniiðnaðinum.

Efni þessara fræðslu- og kynningarfunda er oftast ákveðið með litlum fyrirvara og því auglýst hér á vefsíðu Rafmenntar þegar að þeim kemur. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á póstlista Rafmenntar hér á forsíðunni til að þeir fái sendar tilkynningar um þessa fundi.

Fræðslu- og kynningarfundirnir eru fyrir alla þá sem hafa áhuga á að fylgjast með og vilja geta tekið þátt í umræðunni um það sem er að gerast í tækninni, án þess að kafa of djúpt í málin. Einnig eru þeir góður vettvangur til að hitta kollega og ræða málin.

Í mörgum tilfellum er einnig hægt að bjóða upp á að fylgjast með fræðslu- og kynningarfundum í gegnum fjarfundabúnað.

#### Næst á dagskrá:

[Fræðslu- og kynningarfundir](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fraedsla)

#### Safn:

[Fræðslu- og kynningarfundir - lokið](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fraedsla)

[Upptökur](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fraedsla/kynningarefni)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fraedsla/um-fyrirlestrakvold
