title: "Forritanleg raflagnakerfi II (KNX Basic - hluti B)"
description: "Tillögur að vali íMeistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja Forritanleg raflagnakerfi II (MRAK4KX01) Undanfari:Forritanleg raflagnakerfi I (KNX Basic - hluti A) Í þessum áfanga er lögð…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/forritanleg-raflagnakerfi-ii-knx"

# Forritanleg raflagnakerfi II (KNX Basic - hluti B)

MeistaraskóliH2026MMRAK4KX01BA

Fullt verð**48.400 kr.**

SART

41.140 kr.

Er í meistaraskóla

9.680 kr.

[Skrá áhuga](#ahugi)

Enginn hópur er opinn núna. Við sendum þér póst þegar hópur opnar.

### Tillögur að vali í[Meistaraskóla rafvirkja](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafvirkjar)/[Meistaraskóla rafeindavirkja](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/rafeindavirkjar)

#### Forritanleg raflagnakerfi II (MRAK4KX01)

**Undanfari:**[Forritanleg raflagnakerfi I (KNX Basic - hluti A)](https://www.rafmennt.is/namskeid/forritanleg-raflagnakerfi-i)

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika EIB/KNX kerfisins og hvernig má nota það við stýringu t.d. hitaferla, skjáa, veðurstöðva og ljósasena. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt. Í þessum áfanga forrita nemendur flóknari kerfi en í þeim fyrri og farið er dýpra í forritun einstakra íhluta forritanlegra kerfa.

### Þetta námskeið veitir Evrópska KNX Basic vottun.

- Við skráningu fær þátttakandi afslátt af ETS
- Ef þátttakandi klárar námskeið með prófi verður hann KNX Partner og það sést á KNX vefsíðunni

### Námskeiðsgögn

Kennslugögn í PDF formi, nemendur fá aðgang að fartölvu til leysa verkefnin en eru hvattir til að koma með eigin fartölvu.

## Hópar og dagsetningar

**Engir hópar opnir**

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 48.400 kr. |

| SART | 41.140 kr. |
| Er í meistaraskóla | 9.680 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Meistaraskóli

### Fjarskiptakerfi - reglugerðir og staðlar

Farið er yfir hönnun, lagnir, reglugerðir og virkni ólíkra fjarskiptakerfa.

25. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/fjarskiptakerfi-reglugerdir-og-stadlar)[**Fullbókað**

Meistaraskóli

### Stýringar - loftstýringar

Lærðu að hanna, tengja og prófa einföld loftstýrikerfi.

27. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/styringar-loftstyringar)[**Fullbókað**

Meistaraskóli

### Brunaviðvörunarkerfi og brunaþéttingar

Lærðu um uppsetningu og viðhald brunaviðvörunarkerfa og brunaþéttinga.

30. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunavidvorunarkerfi)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/forritanleg-raflagnakerfi-ii-knx