---
title: "ESP32 örtölvan "
description: "Kynntu þér ESP32 og nýttu möguleika örtölvunnar í snjallar og skapandi lausnir."
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/esp32-ortolvan"
---

# ESP32 örtölvan

Almenn · VeikstraumurV2027NÖTST12ESP32

Kynntu þér ESP32 og nýttu möguleika örtölvunnar í snjallar og skapandi lausnir.

RSÍ endurmenntun**24.000 kr.**

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

3.–17. mars 2027

Tími

kl. 17:00–21; 00

Dagar

Miðvikudagar

Staður

Stórhöfði 27

<a id="kafli-lysing"></a>

## Lýsing

Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur ESP32 örtölvunni, eiginleikum hennar og fjölbreyttum notkunarmöguleikum í rafeindatækni, forritun og sjálfvirkni. Með verklegum æfingum læra þeir að forrita ESP32 í C/C++, tengja skynjara, ljós, hnappa og mótora og þróa einfaldar snjallstýringar.

Einnig verður farið yfir Wi-Fi samskipti, vefviðmót og miðlun gagna með MQTT. Námskeiðið hentar áhugafólki um tækni, nýsköpun, hönnun og listsköpun sem vill öðlast hagnýta grunnþekkingu á ESP32.

Námskeiðið er 12 kennslustundir með áherslu á verklega þjálfun. Þátttakendur fá ESP32 DevKit og tilheyrandi íhluti til eignar að námskeiði loknu.

## Kennari

- **Unnar Elías Björnsson**

    **Unnar** hefur víðtæka reynslu af hugbúnaðarþróun og forritun, meðal annars í C, C++, C#, Java og Python. Hann hefur um árabil starfað við þróun hugbúnaðarlausna, samþættingu kerfa og innleiðingu nýrrar tækni.

    Í meistaraverkefni sínu við Háskóla Íslands hannaði Unnar og smíðaði fjölnota skynjaraborð byggt á ESP32 örtölvunni, ætlað til kennslu í forritun, rafeindatækni og Interneti hlutanna (IoT). Verkefnið fól meðal annars í sér tengingu skynjara og stýringa við ESP32 og nýtingu fjölbreyttra samskiptaleiða.

    Unnar sameinar þannig víðtæka reynslu af hugbúnaðarþróun og sérþekkingu á ESP32, með áherslu á hagnýta notkun tækninnar.

<a id="hopar"></a>

## Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

1. **3–17**mars2027

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    3.–17. mars 2027 · Miðvikudagar

    Tími

    kl. 17:00–21; 00

    Staður

    Stórhöfði 27

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/740619)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| RSÍ endurmenntun | 24.000 kr. |
| --- | --- |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[Almenn · Tæknifólk

### Home Assistant - Grunnur

Kynntu þér Home Assistant og lærðu að stjórna heimilinu með einföldum sjálfvirknilausnum

9. mars 2027](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/home-assistant-husstjornarkerfi)[Almenn

### Microsoft Copilot

6. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/microsoft-copilot)[Almenn

### Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum

6. nóvemberHópur 3](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/aukid-oryggi-i-bygginga-og-mannvirkjagreinum)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/esp32-ortolvan
