---
title: "Erindrekar"
description: "Smíðaðu þitt eigið teymi erindreka (e. AI agents) sem vinnur verkin undir þinni stjórn."
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/erindrekar"
---

# Erindrekar

AlmennV2027NUPTÆ04 AI agents

Smíðaðu þitt eigið teymi erindreka (e. AI agents) sem vinnur verkin undir þinni stjórn.

RSÍ endurmenntun**7.500 kr.**

Fullt verð

19.990 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Næsti hópur

26. janúar 2027

Tími

kl. 08:30–12:30

Dagar

Þriðjudagur

Staður

Stórhöfði 27

<a id="kafli-lysing"></a>

## Lýsing

Námskeiðið fjallar um hvernig erindrekar (e. AI agents) virka og hvernig þeir eru smíðaðir.
Erindrekar taka við markmiði, ákveða sjálfir næstu skref og vinna verkið með þeim verkfærum og gögnum sem þeir hafa aðgang að. Farið er yfir muninn á erindrekum og spjallmennum, hvaða verkefni henta erindrekum og hvernig þeim eru sett hlutverk, fyrirmæli og öryggismörk.
Nemendur læra að tengja erindreka við verkfæri, gögn og ólík kerfi, prófa þá og lagfæra. Nemendur smíða tvo til þrjá erindreka sem sinna hver sínu verkefni og loks yfir-erindreka sem stýrir hinum og útdeilir til þeirra verkefnum.

## Kennari

- **Stefán Gunnarsson**

    **Stefán**, BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stofnandi BrainBox. Hann hefur yfir áratuga reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum, meðal annars af hugbúnaðarþróun, vöruþróun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækis. Á síðustu árum hefur hann sérhæft sig í innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þar byggir hann upp örugg og skipulögð vinnuferli, tengir gervigreind við gögn og verkfæri og kennir fólki að fela henni verkefni undir eigin stjórn. Hann skrifar reglulega um þessi mál. Á námskeiðum sínum byggir Stefán á hagnýtri reynslu af vinnu með gervigreind, allt frá hugmyndaforritun (e. vibe coding) til erindreka sem vinna verkefni í mörgum skrefum.

<a id="hopar"></a>

## Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

1. **26**jan.2027

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    26. janúar 2027 · Þriðjudagur

    Tími

    kl. 08:30–12:30

    Staður

    Stórhöfði 27

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/741397)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 19.990 kr. |
| --- | --- |
| RSÍ endurmenntun | 7.500 kr. |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[Almenn

### Hugmyndaforritun með gervigreind

Á þessu námskeiði lærir þú að byggja eigið smáforrit með aðstoð gervigreindar

11. nóvemberHópur 2](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/hugmyndaforritun-med-gervigreind)[**Fullbókað**Laust 3. desember

Almenn

### Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind

Viltu nýta Claude gervigreind til að spara tíma, bæta gæði og auka framleiðni í starfi?

23. nóvemberLaust 3. desember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/claude)[Almenn

### Rafgæði, truflanir í rafkerfum og jarðbindingar

Lærðu um truflanir í rafkerfum og áhrif yfirtóna á nýtni mótora ofl.

10. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/rafgaedi-truflanir-i-rafkerfum-og-jardbindingar)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/erindrekar
