title: "Drónaflug og myndvinnsla"
description: "Drónar hafa á síðustu árum orðið eitt mikilvægasta verkfæri í nútíma mynd- og myndbandsgerð. Þeir eru notaðir í fjölmiðlum, markaðsefni, kvikmyndagerð, mælingum, ferðamennsku og persónulegum…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/dronaflug-og-myndvinnsla"

# Drónaflug og myndvinnsla

AlmennH2026NMYNDV08Drónafl&myndv

Fullt verð**31.500 kr.**

[Skrá áhuga](#ahugi)

Enginn hópur er opinn núna. Við sendum þér póst þegar hópur opnar.

Drónar hafa á síðustu árum orðið eitt mikilvægasta verkfæri í nútíma mynd- og myndbandsgerð. Þeir eru notaðir í fjölmiðlum, markaðsefni, kvikmyndagerð, mælingum, ferðamennsku og persónulegum verkefnum. Með auknu aðgengi að öflugum drónum fylgja einnig skýrar reglur, ábyrgð og tæknileg atriði sem mikilvægt er að þekkja.

Á þessu tveggja daga námskeiði fá þátttakendur bæði **traustan grunn í notkun dróna og hagnýta þekkingu í vinnslu þess myndefnis sem þeir taka upp.**

## Markmið námskeiðs

Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:

- Hafa góðan skilning á helstu tegundum dróna og notkunarmöguleikum þeirra
- Þekkja helstu reglur um drónaflug, hvaða drónar krefjast leyfa og prófa og hverjir ekki
- Vita hvaða atriði þarf að hafa í huga við öruggt og vandað drónaflug
- Geta skipulagt og framkvæmt einfaldar drónamyndatökur
- Kunna grunnatriði í vinnslu drónamyndbands, þar á meðal litgreiningu, klippingu og samsetningu hljóðs og myndar

### Fyrirkomulag og innihald

Námskeiðið er tvö skipti og skiptist í fyrirlestra fyrri daginn um undirstöðuatriði við notkun á drónum og myndatöku. Seinni dagurinn fer vinnslu myndefnis sem nemendur koma með ásamt fyrirlestrum um myndvinnslu.

### Dagur 1 – Grunnur, reglur og praktísk atriði

Fyrri dagurinn er helgaður **undirstöðuatriðum á reglum drónaflugs, notkun og myndatöku**.

Farið verður meðal annars yfir:

- Kynningu á drónum og breytingum á þeim síðustu árin
- Helstu tegundir dróna og notkunarsvið
- Reglur um drónaflug:

- Hvaða drónar krefjast leyfa og/eða prófa
- Hvaða drónar eru undanþegnir leyfisskyldu
- Ábyrgð flugmanns og öryggissjónarmið
- Hvað þarf að hafa í huga fyrir flug:

- Aðstæður, umhverfi og veður
- Öryggi fólks og eigna
- Algeng mistök og hvað ber að varast

**Verkefni:**
Í lok dags fá þátttakendur verkefni um að taka upp einfalt myndefni með dróna (mynd eða myndband) og koma með það til vinnslu á degi 2.

### Dagur 2 – Myndvinnsla og frágangur

Seinni dagurinn byggir áfram á grunninum og færist yfir í **vinnslu og frágang drónamyndbands**.

Farið verður yfir:

- Stutta yfirferð á lykilatriðum úr degi 1
- Skipulag og val á myndefni, flokkun á myndefni
- Vinnsla á dróna ljósmyndum og myndböndum:

- Litgreining og grunnlitun á RAW/myndefni
- Klipping og samsetning myndefnis
- Samspil hljóðs og myndar
- Hagnýt ráð um frágang og útflutning myndefnis

Unnið verður með myndefni þátttakenda eftir því sem kostur er, þannig að seinni námskeiðsdagurinn verði **sem mest verklegur og raunhæfur**.

**Þátttakendur geta mætt með sinn eigin dróna, þó ekki sé á dagskrá að fljúga þeim á námskeiðinu.**

Kennari er Björn Steinbekk – sjá nánar á [steinbekk.com](https://www.steinbekk.com/about)

Innifalið í námsgjöldum er léttur kvöldverður

### Upptaka af fræðslufundinum um drónaflug er nú aðgengileg — horfa hér

[Video](https://www.youtube-nocookie.com/embed/kgVBE_v4TX0)

## **Dagskrá**

Tveggja daga námskeið. Fyrri dagurinn fer í grunnatriði og reglur, sá seinni í myndvinnslu og frágang.

| Fimmtudagurinn 1. október 17:00 – 21:00 |

| Fimmtudagurinn 8. október 17:00 – 21:00 |

## **Niðurstöður könnunar síðasta námskeiðs**

> *100% þátttakenda í könnun voru ánægðir eða mjög ánægðir með námskeiðið*

> *100% þátttakenda í könnun sögðust mæla með þessu námskeið fyrir áhugasama*

> *Námskeiðið uppfyllti væntingar allra þátttkanda í könnun með tilliti til námskeiðislýsingar*

## Hópar og dagsetningar

**Engir hópar opnir**

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 31.500 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/dronaflug-og-myndvinnsla