title: "Dagskrárgerð fyrir hlaðvarp og útvarp "
description: "Á þessu námskeiði munu nemendur kynnast fjölbreyttum hliðum dagskrárgerðar fyrir útvarp og hlaðvarp. Kafað verður ofan í framleiðsluferlið, form og uppbyggingu, viðtalstækni, skrif fyrir hljóðlestur,…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/dagskrargerd-fyrir-hladvarp-og-utvarp"

# Dagskrárgerð fyrir hlaðvarp og útvarp

AlmennH2026NDAGS15Hlaðogútv

Fullt verð**98.900 kr.**

[Skrá áhuga](#ahugi)

Enginn hópur er opinn núna. Við sendum þér póst þegar hópur opnar.

Námskeið í samstarfi við [Endurmenntun Háskóla Íslands](https://endurmenntun.is/)

Á þessu námskeiði munu nemendur kynnast fjölbreyttum hliðum dagskrárgerðar fyrir útvarp og hlaðvarp. Kafað verður ofan í framleiðsluferlið, form og uppbyggingu, viðtalstækni, skrif fyrir hljóðlestur, samtalsstjórn o.fl. með hlustunardæmum úr öllum áttum. Að námskeiði loknu munu nemendur hafa aflað sér allra helstu upplýsinga til að stíga sín fyrstu skref í dagskrárgerð.

Á námskeiðinu verður kafað ofan í framleiðsluferli útvarps- og hlaðvarpsþátta. Hugað verður að hugmyndavinnu og uppbyggingu hljóðefnis sem og helstu aðferðum sem beitt er við framleiðslu þess eins og viðtalstækni og handritagerð. Farið verður á greinandi hátt yfir samsetningu þátta; skoðuð verða helstu tæki sem notuð eru við vinnsluna, klipping í forritum verður kennd sem og önnur hljóðvinnsla.

Í kennslustundum verður virk samhlustun þar sem hlustað verður á útvarps- og hlaðvarpsþætti og tekið eftir þeim hugtökum sem kennd eru en þátttakendum gefst einnig kostur á að þróa eigin hugmyndir að þáttum í gegnum námskeiðið og vinna stuttar æfingar sem hjálpa þeim að taka fyrstu skrefin í framleiðsluferli eigin þáttar.

### Á námskeiðinu er fjallað um

- Form og uppbyggingu hlaðvarps- og útvarpsþátta
- Handritagerð
- Viðtalstækni
- Klippingu og hljóðvinnslu
- Þróun hugmynda
- Greiningu hljóðefnis
- Raddbeitingu
- Notkun á upptökutækjum
- Samsetningu útvarps- og hlaðvarpsþátta

### Ávinningur þinn

- Skilningur á helstu byggingareiningum útvarps- og hlaðvarpsþátta
- Þekking á helstu aðferðum og hugtökum þáttagerðar
- Skilningur á virkni á klippiforritum og hljóðvinnslu
- Innsýn í framleiðsluferli dagskrárgerðarmanna
- Lærir að taka fyrstu skref í þróun eigin útvarps- eða hlaðvarpsefnis

### Fyrir hverja

Námskeiðið hentar vel fyrir áhugafólk um útvarp og hlaðvarp og sérstaklega þau sem langar að læra að framleiða eigið efni. Þátttakendum mun gefast kostur á að skyggnast á bak við tjöldin og fræðast um hvernig útvarps- og hlaðvarpsþættir eru settir saman frá hugmynd til útsendingar. Ekki er nauðsynlegt að hafa mikla þekkingu á miðlunum fyrir námskeiðið.

### Nánar um kennara

Tómas Ævar Ólafsson er með MA í heimspeki og ritlist og hefur fengist við útvarps- og hlaðvarpsgerð frá árinu 2017. Á ferli sínum hjá Rás 1 hefur hann framleitt þáttaraðir á borð við Öskju, Hvergiland, Ekkert skiptir máli og Ratsjá en einnig stýrt daglegum þáttum á borð við Víðsjá og Tengivagninn.

### Annað

Ágætis ítarefni / eins konar Biblía hlaðvarpa / ekki nauðsynleg kaup:
Eric Nuzum. Make Noise: A Creator's Guide to Podcasting and Great Audio Storytelling. Bandaríkin: Workman Publishing Company, 2019.

## **Dagskrá**

Vikulegir tímar, þrjár klukkustundir í senn. Fyrri hluti námskeiðsins verður í fyrirlestrarformi, í seinni hlutanum verða samræður og gerðar æfingar í hópum.

| Fimmtudagurinn 15. október 19:00 – 22:00 |

| Fimmtudagurinn 22. október 19:00 – 22:00 |
| Fimmtudagurinn 29. október 19:00 – 22:00 |
| Fimmtudagurinn 5. nóvember 19:00 – 22:00 |
| Fimmtudagurinn 12. nóvember 19:00 – 22:00 |

## **Umsagnir nemenda**

> *„Praktísk nálgun og góðar reynslusögur."*

> *„Fjölbreytt og yfirgripsmikið námskeið og mikil þekking kennara á efninu."*

> *„Ég fékk ágæta yfirsýn yfir það hvernig hlaðvörp eru byggð upp svo þau fái hlustun og ýmsa hagnýta punkta um tæknimál og fjármögnun."*

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

**Engir hópar opnir**

Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu netfangið þitt og við sendum þér póst þegar hópur opnar.

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 98.900 kr. |

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/dagskrargerd-fyrir-hladvarp-og-utvarp