---
title: "Andleg þrautseigja "
description: "Kynntu þér streituviðbrögð og áhrif jákvæðra tilfinninga á andlega líðan."
canonical: "https://www.rafmennt.is/endurmenntun/andleg-thrautseigja"
---

# Andleg þrautseigja

AlmennH2026NSTAR02Andlþr

Kynntu þér streituviðbrögð og áhrif jákvæðra tilfinninga á andlega líðan.

RSÍ endurmenntun**5.900 kr.**

Fullt verð

25.000 kr.

[Skrá mig](#hopar)

Skráning fer fram í Innu. Ef þú tilheyrir öðrum verðflokki merkirðu við það í umsókninni.

Sveigjanlegt

15. okt. – 19. des.

Tími

Alltaf opið

Staður

Á netinu

Námskeið í samstarfi við [Opna Háskólann í HR](https://www.oh.ru.is/)

<a id="kafli-lysing"></a>

## Lýsing

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur þekkingu á andlegri þrautseigju og læra að takast á við áskoranir og erfiðleika lífsins á uppbyggilegan hátt. Farið er yfir tilfinningakerfi heilans, streituviðbrögð, núvitund, öndunartækni og áhrif jákvæðra tilfinninga á andlega líðan. Þátttakendur læra hagnýtar aðferðir til að efla streituþol, virkja þakklæti og setja sér markmið í samræmi við eigin gildi.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja styrkja andlega líðan sína, auka sjálfsþekkingu og öðlast betri verkfæri til að takast á við daglegar áskoranir. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.

## Kennari

- **Sigrún Þóra Sveinsdóttir**

    Sálfræðingur og leiðtogi sálfræðiþjónustu fullorðinna í Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu

    Sigrún Þóra er doktorsnemi í sálfræðideild Háskólans í Reykjavík þar sem hún sérhæfir sig meðal annars í lífeðlislegri sálfræði á tengslum milli hjarta og heila og áhrifum þeirra á hugræna frammistöðu og andlega heilsu. Hún hefur starfað sem sálfræðingur lögreglu þar sem hún þjálfaði lögregluþjóna í að byggja upp andlega þrautseigju og streituþol.

    Sigrún Þóra hefur unnið með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga og starfað meðal annars sem yfirsálfræðingur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, sálfræðingur hjá Ljósinu og sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Hún er einnig stofnandi og meðeigandi hugbúnaðarfyrirtækisins Proency sem sérhæfir sig í lausnum sem meta andlega heilsu í rauntíma.

    Sjá einnig grein Sigrúnar Þóru: [Andleg þrautseigja – að vaxa í gegnum áskoranir](https://www.visir.is/g/20242649586d/and-leg-thraut-seigja-ad-vaxa-i-gegnum-a-skoranir)

<a id="hopar"></a>

**Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.**

## Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

1. **15–19**okt.–des.

    ### Hópur 1

    Dagsetning

    15. okt. – 19. des.

    Tími

    Alltaf opið

    Staður

    Á netinu

    Verð

    [Sjá verðskrá](#verdskra)RSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

    [Skrá mig](https://umsokn.inna.is/#!/login/1190/736637)

<a id="verdskra"></a>

## Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

| Fullt verð | 25.000 kr. |
| --- | --- |
| RSÍ endurmenntun | 5.900 kr. |

<a id="hagnytt"></a>

## Hagnýtar upplýsingar

Afbókun

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Staðsetning

Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.

Spurningar?

Hringdu í síma [540 0160](tel:+3545400160) eða sendu póst á [rafmennt@rafmennt.is](mailto:rafmennt@rafmennt.is).
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
[Hafa samband →](https://www.rafmennt.is/hafa-samband)

## Fleiri námskeið

[Öll námskeið →](https://www.rafmennt.is/endurmenntun)

[**Fullbókað**

Almenn

### 3D prentun í iðnaði

Kynntu þér þrívíddarprentun frá grunni og nýttu hana í starfi eða eigin verkefnum.

24. nóvemberSkrá áhuga](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/3d-prentun-i-idnadi)[Almenn

### Brunaþéttingar

Lærðu um gerðir brunaþéttinga, eiginleika þeirra og notkunarsvið.

26. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/brunathettingar)[Almenn

### Skyndihjálp á verkstað

27. nóvember](https://www.rafmennt.is/endurmenntun/skyndihjalp-a-verkstad)

Source: https://www.rafmennt.is/endurmenntun/andleg-thrautseigja
